PVC Útihurðir

PVC Útihurðir

Hurðir úr PVC-u eru viðhaldsfríar, sem þýðir að þú þarft aldrei að mála þær, þær ryðga aldrei né fúna og þær hafa mikla hita og hljóðeinangrun. Útlitsmöguleikar eru óteljandi þar sem allar hurðir eru sérsmíðaðir samkvæmt þínum óskum.  PVC efnið sjálft kemur frá Deceuninck, Brétlandi sem er leiðandi fyrirtæki í PVC framleiðslu og hefur framleitt plastefni frá árinu 1937.

Framleiðslan

Rennihurðir, svalahurðir, tvöfaldar vængjahurðir, bílskúrsgönguhurðir, bátahurðir, þvottahúshurðir, hurðir með opnanlegu fagi … það eru engin takmörk á því hvað við getum smíðað fyrir þig.

Við framleiðum hurðirnar sjálfir í verksmiðju okkar í Grindavík. Framleiðslan stenst hæstu gæðakröfur samkvæmt nýrri byggingarreglugerð og allar okkar hurðir eru CE-merktir. Hurðakarmurinn er 70 x 70 mm marghólfa með galvaniseruðum stálkjarna og frárennsliskerfi en opnalegur hluti er 110mm x 70mm, allar hurðar eru glerjaðir að innan.

Innifalið í þjónustu PGV Framtíðarforms ehf

Hver gluggi eða hurð eru sérsmíðuð eftir máli.  Allur kostnaður við framleiðslu, svo sem teikningar, hönnun, áhöld,  vélar til verksins og annar tilfallandi kostnaður er innifalinn í þjónustu PGV Framtíðarforms ehf. Viðskiptavinur getur verið viss um að um gæðavöru er að ræða.

Bæjarhaun 24, 220 I Opin 9-16 virka daga